Hafa samband við vefumsjónarmann.

 who's online

Velkominn á heimasíðu hestamannafélagsins Hrings.

Hugmyndin með síðunni er að félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins geti fylgst með bæði leik og starfi félagsins.  Endilega sendið línu, myndir, ferðasögur eða hvað sem ykkur dettur í hug sem vert er að setja inn á síðuna.  Allar hugmyndir eru velþegnar. 
   
 
 

       

Hringsfréttir

12.11.2008

Lokahófi í Hringsholti frestað um óákveðin tíma.

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefur verið ákveðið að fresta áður auglýstu lokahófi Hrings sem átti að fara fram næstkomandi laugardag. Við munum auglýsa nýja tímasetningu þegar hún liggur fyrir og viljum biðja ykkur að koma skilaboðunum áfram ásamt því að fylgjast með nýrri tímasetningu bæði á heimasíðunni og á tölvupósti.

kveðja Stjórnin


08.11.2008

Lokahóf í Hringsholti

Laugardaginn 15.nóvember verður haldið lokahóf í Hringsholti. Boðið verður uppá súpu í Hringsholti kl 13:00, tilnefndur verður íþróttamaður Hrings, sprell og fleira.

Sjáumst hress og spræk.

Stjórnin.


05.11.2008

Opinn félagsfundur

Sunnudaginn 9.nóvember verður haldin opinn félagsfundur þar sem félagsmönnum gefst kostur á að ræða ýmis mál sem að félaginu koma. 

Allir hvattir til að mæta.

Stjórnin.


14.10.2008

Bingó og vöfflur í Hringsholti á sunnudag 19.október.

Kæru félagar. 

Sunnudaginn 19. október mun æskulýðsnefnd standa fyrir bingó ásamt því að boðið verður upp á vöflur og kaffi.

Bingóið er ætlað fyrir börn og foreldra, en að sjálfsögðu eru allir velkominir að freista gæfunnar. En fyrst og fremst að koma saman og skemmta sér um stund.

Bingóið hefst kl: 15:00 - 17:00 á sunnudag í félagsaðstöðunni í Hringsholti.

Vonumst til að sjá sem flesta.

kveðja
Æskulýðsnefnd :)



01.10.2008

Stóðréttir og Dansleikur

Stóðréttir í Svarfaðardal um helgina
Hrossasmölun í Holárafrétt og Sveinsstaðaafrétt í Svarfaðardal verða nú um helgina. Hrossin verða rekin réttar á Tungurétt laugardaginn 4. október og samkvæmt upplýsingum Þorsteins Hólm Stefánssonar, fjallskilastjóra er stefnt að því að stóðið  verði komið til réttar kl. 13:00. 
Á laugardagskvöldið verður svo stóðréttardansleikur að Rimum í Svarfaðardal þar sem “Hið heilaga dalvíska þríeyki” Matti Matt, Beggi Kára og Sverrir Þorleifs halda uppi fjörinu frá kl. 23:00 og fram á rauðan morgun.

14.09.2008

Framundan hjá Hring.

Þessa dagana er verið að undirbúa þakskipti á félagsaðstöðunni í Hringsholti. Búið er að panta allt efni sem væntanlega ætti að vera tilbúið til afhendingar um miðja næstu viku. Leitað verður til félagsmanna um að framkvæma verkið og vonumst við eftir góðum undirtektum - margar hendur vinna létt verk!!!

Æskulýsðstarf.

Eins og sést í fréttinni hér fyrir neðan er æskulýðsnefndin komin á fullt í undirbúningi fyrir haustið/veturinn. Í sambandi við æskulýðsstarfið eru uppi ýmsar hugmyndir sem kynntar verða síðar, en greinilegt er að mikil vakning er meðal yngstu kynslóðarinnar.

Lokahóf og Félagsfundur.

Nú á haustdögum verður boðað til almenns félagsfundar.  Dags.- og tímasetning er ekki endanlega ákveðin, en væntanlega í kringum mánaðarmót október/nóvember. Á svipuðum tíma verður einnig sleigið á lokahófi félagsins fyrir vertíðina.

Dagskrá Vetrarins (Viðburðadagatal Hrings)

Í desember mun verða birt viðburðadagatal Hrings, þar sem að helstu viðburðir næstu vertíðar innan félagsins verða kynntir. Mikilvægt er að allar nefndir komi saman og undirbúi þá viðburði sem þær standa fyrir. S.s reiðnámskeið, ferðir, fundi, samkomur, mót og annað sem hægt er að skipuleggja.


12.09.2008

Pizza og Videokvöld hjá Æskulýðsnefnd.

Laugardagskvöldið 20 september mun æskulýðsnefnd standa fyrir samkomu fyrir börn og unglinga í Hring. Boðið verður uppá pizzu og video. Farið verður yfir hugmyndir af starfsemi, og dagskrá vetrarins kynnt.  Þessa dagana er verið að kanna nýungar í æskulýðsstarfinu þar sem að mikil vakning virðist vera hjá yngstu kynslóðinni.

Videokvöldið hefst kl 18:00 í félagsaðstöðunni í Hringsholti.


26.08.2008

Tíma og staðsetning fyrir knapamerkjadömurnar.

Þá er komin tímasettning og staðsettning fyrir kvenna hittinginn það verður í Hringsholti fimmtudagskvöldið næsta kl:21:00  þ.e. félagsaðstöðu Hrings.

kv. Inga



22.08.2008

Knapamerki hjá dömunum.

Konur sem voru í knapamerki 2 og þær sem hafa áhuga á að vera með í þessum góða félagsskap næsta vetur hittumst næsta fimmtudag 28 ágúst annaðhvort í Hringsholti eða heima hjá Ingu M. nánar tilkynnt síðar um tíma og frekari staðsettningu, vinsamlegast látið berast.
kv. Inga.


16.08.2008

Heildarúrslit úr íþróttamóti Hrings komin á vefinn

Nú eru heildarúrslit úr opna íþróttamótinu sem við héldum í byrjum ágúst komin á vefinn. Áður höfðu einungis niðurstöður úr
úrslitakeppni verðir birt hér.
Smelltu hér til að skoða heildarúrslitin.


16.08.2008

Frábær þátttaka í skemmtireið um Svarfaðardalinn.

Það er óhætt að segja að það hafi verið frábær þátttaka þó að fyrirvari hafi verið stuttur að skemmtireiðinni í dag. En um 60 knapar riðu saman frá Hringsholti í blíðskapar veðri um miðjan dag áleiðis fram Svarfaðardalinn. Stutt stopp var tekið við Grund og bakkarnir riðnir heim að Hringsholti aftur. Þar tók við "samhliða" þrautabraut þar sem knapar skoruðu á hvorn annan. Að þrautunum loknum var grillið orðið heitt og endaði dagurinn á glæsilegri grillveislu. Túrinn og uppákomur voru í samstarfi við Sportferðir, Becks og Ektarétti og þökkum við þeim fyrir frábæran dag, einnig fá allir 60 knaparnir þakkir fyrir góðan dag.


13.08.2008
Skemmti reið / óvissuferð laugardaginn 16. ágúst !!!! :)
Eftir að ljóst var að Bikarmót norðurlands félli niður hefur verið ákveðið að efna til skemmtireiðar/óvissuferðar öllum þeim sem hug hafa. Lítið verður gefið upp að svo stöddu en leikar hefjast við Hringsholt kl 13:30 þar sem bæði fullorðnir og börn eru velkomin og allir á hestbaki. Veðurspáin lofar góðu og því kjörið tækifæri að eiga góðann dag saman. Þar sem að ferðin er skipulögð í samráði við Sportferðir, Beck´s og Ektaretti vitum við nú þegar að um 30 knapar eru skráðir í túrinn og því ljóst að það verður líf og fjör. Hafi menn áhuga á að fylgja þeim hópi frá Kálfsskinni og heim í Hringsholt á  föstudagsseinnipart er það velkomið og þá er best að tilkynna það hjá Marinó í síma 894 - 2967. Þeir sem vilja taka þátt í skemmtireiðinni / óvissuferð á laugardaginn skrái sig hjá Sveini Torfa í síma 861 - 6907. Síðasti skráningarfrestur er föstudagur kl. 12:00

 Smá punktar fyirr þá sem það þurfa :)

kl.13:30 Lagt verður af stað  frá Hringsholti í reiðtúr

kl.15:45: Riðið áleiðis heim að Hringsholti.

kl.17:00: Komið í Hringsholt

kl. 18:00 Grillveisla í Hringsholti.

Hvað gerist á milli hverra tímasetninga kemur í ljós á laugardaginn :)

Þátttökugjöld í túrinn er 3500 á hvern fullorðinn og 1500 á börn.



12.08.2008

Bikarmóti Norðurlands 2008 aflýst.

Mótanefnd Hrings hefur tekið þá ákvörðun að aflýsa Bikarmóti Norðulands 2008. Ástæðan er sú að einungis ein sveit skráði til leiks. Ekki verður unnt að færa mótið þar sem að aðrar helgar ágústmánaðar eru uppteknar og því litlar líkur á að skráningar í mótið verði nægar. Þar með er opinberi mótavertíð lokið hjá félaginu.


11.08.2008

Nóg að gera hjá Hringsfélögum um sl. helgi.

Það var í nógu að snúast um síðastliðna helgi hjá Hringsfélögum. Á föstudag var tekin skóflustunga af nýju íþróttahúsi á Dalvík sem rísa mun við sundlaug Dalvíkur. Þar mættur Hringsfélagar uppáklæddir félagsbúning, ásamt fulltrúum annara íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð. Á Fiskidag mönnuðu um 20 Hringsfélagar grillstöð á hafnarsvæðinu á Dalvík. Það var góð stemning á svæðinu og margir magar mettaðir þann daginn.  Framundan er lokamót þessarar vertíðar en Bikarmót norðurlands verður haldið um næstu helgi, og eins og fram hefur komið á síðunni mun Anton Páll verða liðsstjóri og velja okkar sveit þetta árið. Nánari upplýsingar um mótið mun koma á næstu dögum.


07.08.2008

Úrslit úr opnu íþróttamóti Hrings.

Á þriðjudagskvöldið sl. fór fram opið íþróttamót Hrings. Óhætt er að segja að fjöldi þátttakenda hafi farið langt fram úr því sem reiknað var með, og voru skráningar um 65. Sérstakt gleðiefni er hversu margir bæði fullorðnir og börn voru að stíga sín fyrstu skref á keppnisvellinum. Í barnaflokki voru 11.þátttakendur og voru það flest börn sem voru að taka þátt í sínu fyrsta móti.

Mótið var hefðbundið íþróttamót með gæðingaskeiði og 100m skeiði, en þetta fyrirkomulag að hefja mótið seinnipart á virkum degi hefur greinilega verið stór þáttur í því hversu margir voru með, því síðast liðin ár hefur þurft að fella mótið niður vegna lélegrar þátttöku. Við erum ánægðir með hversu margir, bæði þátttakendur og áhorfendur mættu á svæðið og nutu þess að horfa á knapa og hesta þreyta skemmtilega keppni. Hugmyndir komu um að halda slíku fyrirkomulagi á mótinu, þ.e.a.s að mótið fari fram seinnipart og gæti þess vegna orðið einskonar miðnæturmót en þá fyrr á sumrinu, því birtuskilyrði voru orðin heldur döpur undir lok móts.

Úrslitin voru eftirfarandi.


07.08.2008

Anton Páll Níelsson verður liðsstjóri sveitar Hrings á Bikarmóti Norðurlands. Val í sveitina stendur yfir.

Nú styttist í Bikarmót Norðurlands sem haldið verður í Hringsholti helgina 16. - 17. ágúst. Undirbúningur okkar Hringsmanna er nú kominn á fullt skrið og hefur Anton Páll Níelsson verið fenginn sem liðsstjóri sveitarinnar. Við val í sveitina verða úrslit nýlokins íþróttamóts höfð til hliðsjónar en þar sem ljóst er að ekki áttu allir heimagengt á mótið hefur verið ákeðið að bjóða knöpum sem áhuga hafa á sæti í sveitinni að mæta með hross sín á keppnisvöllinn á mánudags-, og þriðjudagskvöld kl. 20:00. Þar mun Anton Páll verða og taka hross og knapa út og eftir það stilla endanlega upp í sveit Hrings. Við hvetum alla til að koma og sýna sig og sanna því eins og áður sagði hefur val á liðinu ekki enn farið fram svo menn hafa enn möguleika á þátttöku í öllum greinum. Við biðjum þá sem þetta lesa endileg að láta það berast til sem flestra til að tryggja að enginn sem áhuga hefur fari á mis við þetta. Um er að ræða tölt og fjórgang unglinga, tölt, fjórgang, fimmgang, slaktaumatölt, gæðingaskeið og 100 m skeið fullorðinna.


04.08.2008

Íþróttamót Hrings

Líflegt hefur verið í skráningum fyrir opna íþróttamótið sem fram fer á morgun. Útlit er fyrir að heildar fjöldi skráninga verði í kringum 60 sem verður að kallast harla gott. Nú stendur yfir vinna við að gera ráslista klára og verða þeir birtir hér á síðunni síðar í dag eða kvöld. Dagskrá mótsins er hins vegar tilbúin og verður sem hér segir:

17:00 Þrígangur barna
          Fjórgangur unglingaflokkur
17:45 Fjórgangur 1. flokkur
          Tölt unglingaflokkur
18:45 Fimmgangur 1. flokkur
          Tölt 1. flokkur
20:00 Gæðingaskeið
          100 m skeið
21:00 Úrslit

Þar sem skráningar voru heldur fleiri en við reiknuðum með verður dagskráin kannski heldur knöpp og viljum við því biðja knapa að fylgjast vel með og vera tilbúna til að hjálpa okkur að halda dagskrá. Við vonum svo að allir mæti með brosið með sér og eigi skemmtilega kvöldstund með okkur.

Ráslistarnir eru klárir og komnir á netið. Smellið hér til að skoða listana.


02.08.2008

Góður árangur hjá Ragnari á Blönduósi.

Fyrir skömmu var haldið gæðingamót á Blönduósi og þar keppti Hringsfélaginn Ragnar Stefánsson sem gestur.  Ragnar náði góðum árangri á mótinu með hryssurnar Lotningu frá Þúfum og Eldingu frá Hauganesi.  Elding og Ragnar voru efst í A-flokki eftir forkeppni en enduðu í 3.sæti í úrslitum með 8.18 í einkunn.  Ragnar reið Lotningu í B-flokki og tölti.  Í B-flokki urðu þau í öðru sæði með 8.42.  Í töltinu var parið í fyrsta til öðru sæti en Ragnar kaus að ekki ríða bráðabana þar sem Lotning var búin með tvær forkeppnir og tvenn úrslit þann dag.

Til hamingju með árangurinn Ragnar :)


01.07.2008

Grillsveit Hrings á Fiskidag.

Kæru félagar, þá fer að styttast í Fiskidaginn. Eins og undanfarin ár mætir Hringur með grillsveit. Ennþá vantar nokkra í grillsveit milli kl 13 og 15 og 15 og 17. Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast hafið samband við Svein í síma 861 - 6907.


31.07.2008

Bikarmót Norðurlands.

Helgina 16. og 17. ágúst verður Bikarmót Norðurlands haldið á Hringsholtsvelli. Nánari upplýsingar um mótið munu birtast hér á heimasíðunni á næstu dögum.

ATH. mótið hefur verið fært um einn dag þ.e.a.s frá föstudeginum 15.ágúst yfir á laugardaginn 16. ágúst.

Mótanefnd Hrings  


24.06.2008

Íþróttamót Hrings.

 Opið íþróttamót Hestamannafélagsins Hrings verður haldið í Hringsholti þriðjudaginn 5. águst n.k. og hefst keppni kl 17:00

Keppinsgreinar eru eftirfarandi.

1.flokkur: Fimmgangur, Fjórgangur, Tölt, Gæðingaskeið

Ungligaflokkur: Fjórgangur, Tölt

Börn: Þrígangur - riðnir verða 3.hringir. Breytt fyrirkomulag. Nánari útskýringar koma fljótlega.

Auk þess verður keppt í 100m skeiði.

Við skráningu skal taka fram IS-númer hests og kennitölu knapa.  Skráningargjald er 2000kr á fyrstu skráningu og 1500 kr. á hverja  skráningu knapa eftir það hjá fullorðunum, en 1500 kr. á fyrstu og 1000 kr. eftir það hjá börnum og unglingum.

Skráningarfrestur er til kl. 20:00 sunnudagskvöldið 2. águst í síma 862 - 2242 eða á netfangið bjarna@dalvik.is.


23.06.2008

Agnar og Rómur á Norðurlandamót.

Norðulandamótið í hestaíþróttum fer fram í Noregi dagana 6 - 10 ágúst. Okkar maður Agnar Snorri Stefánsson hefur verið valin sem einn af fulltrúum Íslands, þar sem hann mætir með Róm frá Búðardal. Þeir félagar voru í feiknar stuði í vetur þar sem þeir tóku þátt í Meistaradeildinni í Danmörku. Það verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur nú á móti bestu hestum Norðurlandana.

Gangi ykkur vel. :)


20.06.2008

Anton Páll á Íslandmót.

Einn fulltrúi Hrings mun mæta á Íslandsmót sem haldið verður í Viðidalnum og hefst á morgun fimmtudag 24.júlí. Anton Páll mætir þar með Örn frá Arnarstöðum, Neista frá Hauganesi og Feng frá Sauðárkróki, einnig stóð til að Glaður frá Grund færi en hann slasaðist nú á dögunum og verður því heima og jafnar sig.

Gangi þér vel Toni :)


17.06.2008

Vegna flutninga vefumsjónarmanns hefur heimasíðan legið niðri um stund. Núna er allt að komast á rétta staði, þannig að hægt verður að uppfæra síðuna.


16.06.2008

Úrslit úr Gæðingamóti Hrings.

Á laugardaginn var haldið gæðingamót sem jafnframt var úrtökumót Hrings fyrir komandi Landsmót á Hellu. Blíðskapar veður var í Holti og kunnu bæði hestar og menn vel við sig, þó svo að dræm þátttaka hafi verið í mótinu. Hér er að sjá þrjá efstu hesta í hverjum flokki sem jafnfram eru fulltrúar Hrings á Landsmóti 2008. Nánari úrslit munu verða birt síðar hér á síðunni.


14.06.2008

Kynbótasýnig í Hringsholti.

Síðastliðna daga hefur verið margt um manninn og mjög líflegt í Hringsholti. En um 160 hross hafa verið dæmd og er þetta mesti fjöldi hrossa á einni sýningu á norðurlandi. Hringsfélagar hafa verið duglegir í ár, og hér fyrir neðan eru dómar á þeim hrossum sem Hringsfélagar hafa sent í dóm.

Sjá hér

Mynd: Kappi og Mette Manseth (fengin af husavikurhestar.is)


11.06.2008

Ráslisti Gæðingamóts Hrings.

Þá er ráslisti fyrir gæðingamótið klár, en ráslistar fyrir skeiðgreinar verður tilkynntur á mótsstað.

Ráslistar gæðingamóts Hrings


11.06.2008

Gæðingakeppni og skeiðmót hjá Hring
Gæðingakeppni Hrings og úrtaka fyrir Landsmót fer fram laugardaginn 14. júní við Hringsholt og hefst kl. 10:00. Keppt verður í A-flokki, B-flokki og unglingaflokki - skráningu lokið.
 
Kl. 14:00 verður svo keppt í 100 m  150 m skeiði 250 m skeiði   og 100 m skeiði þar sem margir þekktir norðlenskir skeiðgarpar verða teknir til kostanna og munu tímar úr skeiðgreinum gilda inn á stöðulista fyrir Landsmót (Startbásar og rafræn tímataka). Skráning í skeiðgreinarnar er til kl. 20:00 föstudagskvöldið 13. júní á  netfangið halldor@rimar.is eða í síma 847 5446.

10.06.2008

Skráningu á Gæðingamót og úrtöku fyrir Landsmót lokið.

Þá Þá hefur skráningu fyrir Gæðingamót sem jafnframt er úrtökumót fyrir Landsmót verið lokað. Hafist verður handa við að vinna úr skráningum og setja upp ráslista sem birtir verða hér á vefnum næstu daga. Einnig mun dagskrá mótsins verða birt hér á vefnum.


08.06.2008 - aðsend fyrirspurn.

Fengum senda þessa fyrirspurn á póstfanigið okkar, skelli þessu inn ef einhverjir geta orðið að liði.

Eigum við að skipta tímabundið?

Ég er að fara í hestaferð í lok júní, 19-27,  og vantar að fá lánaða/leigða 3-5 hesta kerru yfir þann tíma.
Í staðinn er ég tilbúin að lána mína 5 hesta kerru í svipaðan tíma seinna.

Eva

sími: 892-2534
netfang: torfevas@mi.is

07.06.2008

Sparisjóður Svarfdæla niðurgreiðir kaup á reiðhjálmum.

Vert er að minna félagsmenn Hrings á að Sparisjóður Svarfdæla niðurgreiðir hvern reiðhjálm um 1500 kr gegn framvísun kvittunar á hjálminum. 


07.06.2008

Póstlisti Hrings.

Hér vinstra megin á síðunni er hægt að skrá sig á póstlista Hrings, allir félagar í Hring eru hvattir til að skrá sig, og þeir sem þegar eru skráðir að láta vita ef póstfang breytist. Reglulega er sendur út póstur um það sem um er að vera innan félagsins, mót, námskeið og þessháttar. Einnig ef einhverjar breytingar verða á auglýstri dagskrá þá reynum við að koma upplýsingum til sem flestra í gegnum póstinn.


30.05.2008

Gæðingakeppni Hrings og úrtaka fyrir Landsmót

Gæðingakeppni Hrings og úrtaka fyrir Landsmót fer fram laugardaginn 14. júní í Hringsholti. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki auk þess sem keppt verður í tölti, 100 m skeiði og 150 m skeiði og munu einkunnir og tímar úr þeim greinum gilda inn á stöðulista fyrir Landsmót. Skráningarfrestur er til kl. 20:00 þriðjudagskvöldið 10. júní á netfangið halldor@rimar.is. Dagskrá mótsins verður nánar auglýst síðar.

 

                                                                                                Mótanefnd


Eldri fréttir:

Fréttir 2007

 

Við styðjum Hring

 

 

Dalvíkurbyggð