Velkominn á vef Hrísdalshesta

 

 
Hrókur frá Flugumýri og Bjarkeyjar Kolbrá Lilja (Kola) leika sér

 
Bjarmi frá Keldudal, 4. vetra stóðhestur til sölu.
Frekari upplýsingar á sölulista.  Fleiri myndir

Í Hrísdal er stunduð markviss hrossarækt undir merkjum Hrísdalshesta sf. og má hér á bæ finna margar úrvalshryssur í ræktuninni, þar á meðal 4 fyrstu verðlauna gripi af góðum ættum, auk úrvals mera sem hafa annað hvort hlotið prýðilegan dóm, sannað sig á keppnisbrautinni, eða sem reiðhross. 

Hrísdalshestar bjóða upp á alhliða tamningu og þjálfun hrossa í fullkomnu og glæsilegu 32 hesta hesthúsi ásamt reiðhöll.  Aðstaðan var tekin í notkun haustið 2006.

Hrísdalur er nær höfuðborgarsvæðinu en margur heldur, (sjá kort hér á síðunni), um það bil 140 kílómetrar og því fljótlegt að skreppa vestur og skoða aðstæður.  Það er alltaf heitt á könnunni og hægt að skoða söluhross, eða spjalla um þjálfun eða tamningu. 

Allar frekari upplýsingar veita Siguroddur Pétursson í síma 897 9392, Ásdís Ó. Sigurðardóttir í síma 4868828 og Gunnar Sturluson í síma 8602337.  Einnig er hægt að senda tölvupóst á hrisdalur@hrisdalur.is.


Feldur frá Hæli, Brá frá Laugardælum og Gáta frá Hrísdal, (Kolfinnsdóttir frá Kvíarhóli)
hlaupa um á Þingeyrum.


     
 Valur frá Keldudal 2008      Katla frá Hrísdal 2008  Ungfolar spóka sig
     



Siguroddur á Hróki frá Flugumýri

Eimur Aronsson frá Hrísdal
 

Ófeigur Hróksson frá Hrísdal sefur vært

Hnáta Hnokkadóttir frá Hrísdal



   
Siguroddur á Sigurrósu frá Strandarhjáleigu
í ræktunarbússýningu Strandarhjáleigubænda
á LM 2008
 Guðný Margrét í 7. sæti í barnaflokki á LM 2008