Sögusetur íslenska hestsins Skagafjörður
Á forsíðu Prenta síðu Veftré LEITA
Sögusetur íslenska hestsins ses - Hólum í Hjaltadal - 551 Sauðárkrókur - Sími: 455 6345 - Fax: 455 6301 - kt 4712060320 - sogusetur@sogusetur.is

 Erindi og greinar

Hrafnkell Lárusson, sagnfræðingur flutti erindi um hrossakjötsneyslu landsmanna, frá almennu forboði til daglegrar neyslu, á Hrossablóti Sögusetursins þann 18. október 2008. Útdrátt úr erindinu er að finna hér að neðan. Um hrossakjötsát: Um aldir var það almennt viðhorf í íslensku samfélagi að algjört bann væri við því að leggja sér hrossakjöt til munns. Þetta bann var tengt túlkun á Biblíunni, sem fól í sér að einungis mætti borða kjöt af klaufdýrum. Bannið við hrossakjötsáti var fornt en neysla þess var meðal annars notuð til að greina á milli heiðinna manna og kristinna í frumkristni á Norðurlöndum. Í fyrstu íslensku kristnilögunum er hrosskjötsát lagt að jöfnu við barnaútburð og skurðgoðadýrkun. Viðbjóður manna á hrossakjöti var svo mikill að það eitt að handfjatla eða nýta sér...
 meira

   Fleiri erindi og greinar

Fróðleiksmoli

Á Íslandi, í heiðnum sið var hesturinn gjarnan heygður með húsbónda sínum. Í þeim gröfum sem... meira
Fyrri fróðleiksmolar

Vísa vikunnar

Hugann glæðir fáks í fylgd fögur svæði kanna.        Túlka bæði táp og snilld tilþrif gæðinganna.

Allar vísur vikunnar

 Fréttir

11/3/2008
Ráðstefnu um Sauðárkrókshrossin FRESTAÐ
Ráðstefnu Sögusetursins, um Sauðárkrókshrossin, sem vera átti 22. nóvember 2008, verður frestað vegna óviðráðanlegra orsaka fram í mars 2009. Endanleg dagsetning mun liggja fyrir á næstu dögum.
10/24/2008
Myndarlegur styrkur Menningarráðs
Sögusetri íslenska hestsins var úthlutað á dögunum afar myndarlegum styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra, alls að upphæð 1.600.000.- Styrkurinn gerir Sögusetrinu mögulegt að halda áfram vinnu við uppsetningu á stafrænu ljósmyndasafni um íslenska hestinn.
10/22/2008
Hrossaveislan í fjölmiðlum
Fjölmiðlar veittu hrossaveislu Sögusetursins sem haldin var í samstarfi við Hótel Varmahlíð og Friðrik V. allmikla athygli. Umfjöllun um veisluna má finna með því að smella á hlekkina hér að neðan.
10/21/2008
Vel heppnuð hrossaveisla
Hrossaveisla Söguseturs íslenska hestsins sem unnin var í samstarfi við Hótel Varmahlíð og Friðrik V. á Akureyri og fram fór á Hótel Varmahlíð laugardagskvöldið 18. október sl.

Skoða eldri fréttir

Myndir


Aðstoðaðu Sögusetrið við að bera kennsl á myndefnið sogusetur@sogusetur.is

Reykjarétt 1938
Reykjarétt 1938

Ferjað yfir Blöndu
Ferjað yfir Blöndu